.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

Enn eitt bloggið - aftur á Svansson.net

2007-06-23 13:36

Er aftur byrjaður að blogga á svansson.net, nú sem einn margra sem blogga

Latur, ég?

2007-06-01 17:40

Já, svona í bili í það minnsta. Er duglegri á Moggablogginu, en hugsa það lagist nú fyrir því. :)

.

.

Símtal dagsins

2007-04-23 22:21

Ég svara. "Já sæll. L.... heiti ég og hringi frá Flytjanda. Þið hafið verið að láta okkur dreifa fyrir ykkur blöðum."

Jújú, ég kannaðist við það. "Sko langaði að biðja ykkur að hafa það í huga að fylla fylgibréfin út með góðum kúlupenna."

Ég er ekkert að grínast með þetta. Hún bað mig í alvörunni um þetta. Verðandi er sem kunnugt er lítið frumkvölafyrirtæki, með lítið umleikis og einu pennarnir sem við eigum eru bleikir glærupennar, sem við notum til prófarkalestrar. Fyrir þá sem ekki vita það (og þeir eru held ég margir) er bleikur miklu betri en rauður fyrir prófarkalestur. Nú er sumsé komið að þeim tímamótum í lífi blaðsins að það þarf að eignast alvöru kúlupenna.

Ég gæti vel hugsað mér ef hægt er að eignast eins og einn með áletruninni Sjálfstæðisflokkurini, en þó ekki mikið fleiri. Og nei, ég ætla ekki aftur í flokkinn.

Talandi um vörur frá Íhaldinu, ég varð mér út um fleiri "Konur, skerpum klærnar" boli með góðri hjálp frá ónefndum klett.


.

User:
Pass:

Guðmundur Rúnar Svansson - gudmus_att_klaki.net