Atkvæðaberi Íhaldsins
2006-05-31 11:28
Þetta var síðasta sendingin að norðan sem átti að fara með flugi. Venjan er að biðja einfaldlega flugmennina fyrir atkvæði af þessum toga, en í þar sem flugvélin átti að lenda stuttu fyrir lokun kjörfundar og flugmaðurinn er jafnan síðastur frá borði vorum menn í tímaþröng með þetta. Úr varð að tveir snatar frá flokknum voru einfaldlega sendir niður á flugvöll með atkvæðin og þau einföldu fyrirmæli að finna einhvern sem þeir þekktu og biðja hann fyrir atkvæðin.
Það er skemmst frá því að segja að þeir fundu mann sem var til í þetta - en atkvæðin fékk hann þó ekki umyrðalaust í hendur. Kosningastjóri norðanmanna sá sitt óvænna þegar snatarnir hringdu í hann og vísaði málinu til æðstu staða í Valhöll. Þar kom líka fát á menn en eftir einhverja umhugsun var það leyft að manninum yrði trúað fyrir atkvæðunum, sem hentaði reyndar vel. Hann var hvort eð var á leið til kjörstjórnar með utankjörfundaratkvæði frá Vinstri grænum!
Það er ekki annað vitað en þessum atkvæðum hafi verið haldið vel til haga og þau hafi komist skilmerkilega á leiðarenda, en það var Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, sem aumkvaði sig yfir þessa ungu norðanmenn og tók við þessum atkvæðum fyrir þá. Líklega hefur hann ekki kunnað við að neita þeim um þetta - en hann mun þó ekki hafa haft húmor fyrir þessu uppátæki.