Nöldrið á ritstjórnarfundunum

2006-10-30 09:45

Ég man eftir þessu síðan ég var að vinna á Fréttablaðinu í fyrrasumar, sem SME tæpir á í dag.

Á hverjum einasta ritstjórnarfundi voru menn hálfbölvandi eigendunum fyrir að gefa ekki frá sér ákæruskjalið þó sífellt væri verið að ganga eftir því að fá það. Þannig gekk það í nokkra daga.

Svo var það einn daginn að allstór hópur sat lengi inni á skrifstofu Kára Jónassonar, sem var öll úr glerinu sem Páll Ásgeir gerði frægt í grein sinni um Daginn sem skipið sökk. Á fundinum voru Sigmundur Ernir, Jóhann Hauksson, Kári Jónasson, Sigurður Þór Salvarsson og Hafliði Helgason á Markaðnum. Einnig minnir mig að þar Jón Kaldal og Trausti Hafliðason verið, en er ekki jafnviss um þá. Þessir hafa þá væntanlega sammælst um samkomulagið sem SME segist hafa rofið munnlega einn síns liðs, og það segir þá væntanlega sitthvað um stöðu hans á Fréttablaðinu á þeim tíma.

Ekkert frétti ég af því hvað rætt var þarna inni, en það var ekki erfitt að geta sér til um hvaða mál það var. Og eftir þetta var aldrei nöldrað yfir því að eigendur blaðsins skyldu halda svo fast í ákæruskjalið.

Viðbót 16:00: Og nú er Sævarr búinn að linka á þetta og þykir nöfnin fróðleg. Reyndar bloggaði ég þetta áður en hann spurði sérstaklega í blogginu á undan hverjir þetta voru. En mér fannst þessi fundur eftirminnilegur, enda óhefðbundinn, og hann var langur, og man hann því held ég sæmilega.

Og því er við að bæta að ég minnist þess ekki að Gunnar Smári hafi verið á honum né nokkur annar sem gæti hafa verið fulltrúi eigenda, og veit ekkert um hvað var rætt.


User:
Pass:

Guðmundur Rúnar Svansson - gudmus_att_klaki.net