Ekki nýjustu fréttir, minningar
2007-04-18 16:37
Skemmtistaðurinn Pravda: Síðasta föstudagskvöld. Útgáfupartí hjá Reykjavík Grapevine. Slúðursögur um mann sem ég skutlaði heim frá Ísafirði. Listi frá Aðalsteini yfir staði sem ég ætti aldrei að bjóða auglýsingapláss til sölu. Draghaltur ritstjóri. "Heppnasta" kona Íslands og önnur sem var slæmur vinnufélagi. Nokkrum vikum fyrr einhver stelpa sem félagi minn var að eltast við. Febrúar 2004, AÞS les upp sigurtölur fyrir Vöku, 5-3-1. Og fleira.
Café Rósenberg: Líka síðasta föstudagskvöld. Surprise band að spila. Villi Naglbítur á settlista á töflunni, gott ef ekki í kvöld eða annað kvöld. Eldri minningar: Kotra - skyldi borðið hafa brunnið? Svavar með trúbadoraatriði, "Jáá, Skál!". Þrítugsafmæli Jósa og bjór sem Óligneisti bauð mér upp á (ég er ekki enn alveg kominn yfir það ;). Deit - og reyndar séns líka.
Kebab-húsið: Seint í mars, setti stafla af Verðandi þar. Leit alltaf til með bunkanum þegar ég gekk framhjá. Borðaði ekki oft þar, en kom fyrir.