Bönnum Comic Sans
2007-04-21 00:00
Alger snilld. Það eru til samtök um að láta banna fontinn Comic Sans. Þetta hefði ég aldrei frétt ef ónefndur auglýsandi hefði ekki skilað inn allt of stórri auglýsingu og kallað þannig fram pirring hjá uppsetningarteyminu mínu.
En ég upplýsi ekkert um það hvaða auglýsandi það er. Þið verðið bara að bíða eftir blaðinu. :)
"While we recognize the font may be appropriate in a few specific instances, our position is that the only effective means of ending this epidemic of abuse is to completely ban Comic Sans."
- af bancomicsans.com.
Bara grín? Það verður að viðurkennast að framtíðarhorfurnar eru ógnvænlegar! Hér er síðan undirskriftasöfnun á netinu til höfuðs fontinum.